Sjúddirarí Rei
$14.99
Buy on Amazon View on Apple BooksPrefer it in print? See every format on Amazon →
Price on Apple Books. Amazon’s price may differ.
- Published
- Genres
- Biographies & Memoirs
Description
Gylfi Ægisson er fyrir löngu orðinn þjóðareign fyrir lagasmíðar sínar og listamannsstörf. Þessi einstaki maður hefur þurft að klífa marga brekkuna og oft var útlitið svart, en sterk listræn þörf og einlæg trú á samfylgd Jesú á lífsgöngunni hafa haldið honum á brautinni. Hann fæddist ekki með gullskeið í munni. Var kominn á sjó strax á unglingsaldri og þvældist um landið þvert og endilangt. Hann byrjaði ungur að drekka og varð óreglumaður af stórkostlegri sort. Slíkir menn þurfa að kunna ýmislegt fyrir sér í hörðum heimi og þegar kom að slagsmálum, peningaharki og kvennastússi voru honum allir hnútar kunnugir.
Þrátt fyrir kalsasamt líf dó hið meyra aldrei í þessari rómantísku og leitandi listamannssál. Hann spilaði og söng, hann samdi lög og gaf af sér gleði og yl til samferðamanna sinna. Hann stráði perlunum í kringum sig. Loks hjálpaði Guð honum að stinga tappanum í flöskuna og síðan hefur hann ekki smakkað það. Hann hefur haldið áfram að vaxa og þroskast sem listamaður og náð einstökum árangri sem málari og tónlistarmaður. Vegur Gylfa hefur aldrei verið meiri en nú.
Sólmundur Hólm Sólmundarson segir umbúðalaust sögu þessa dáðadrengs á máli sem allir skilja. Gylfi er eitilharður við sjálfan sig og gerir upp grýttustu spottana á lífsleiðinni af einstakri hreinskilni. Saga Gylfa snertir lesandann djúpt. Hún er saga um mann sem tapar miklu, lendir úti á jaðrinum og endar við dauðans dyr en kemst aftur inn í ljósið. Í henni er mikið sjúddirarí rei.
Sólmundur Hólm Sólmundarson er fæddur 1983. Hann hefur starfað sem blaðamaður á DV, Vísi og Fréttablaðinu og var um tíma ritstjóri vikuritsins Sirkuss. Hann er viðskiptafræðingur að mennt. Sjúddirarí rei – Endurminningar Gylfa Ægissonar er fyrsta bók Sólmundar.